Samkvæmt lögum er öllum launamönnum rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar. Atvinnurekendum er sömuleiðis rétt og skylt að halda eftir iðgjaldi af launum launþega og skila því til lífeyrissjóðsins ásamt mótframlagi sínu.
Iðgjald til lífeyrissjóðsins frá 1. janúar 2007 er 12% af heildarlaunum, þ.e. tekjum af dagvinnu, eftirvinnu, næturvinnu, álagsgreiðslum og orlofi. Sjóðfélagar á aldrinum 16 - 70 ára greiða 4% af öllum launum sínum til sjóðsins og launagreiðendur 8%.
Yfirlit yfir móttekin iðgjöld eru send sjóðfélögum tvisvar á ári og þurfa sjóðfélagar að gera athugasemdir við yfirlitið innan 60 daga frá útsendingardegi ef vanhöld sýnast á iðgjaldaskilum. Nauðsynlegt er að sjóðfélagar beri þessi yfirlit saman við launaseðla sína til að tryggja rétt skil.