Ársfundur Festu lífeyrissjóðs var haldinn 20. apríl sl. í Eldborg, Svartsengi. Fram kom á ársfundinum að tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 9,9% í árslok 2009. Stjórn sjóðsins lagði fram tillögu um skerðingu áunninna lífeyrisréttinda. Samþykkti ársfundur sjóðsins tillögu stjórnar um 5% lækkun allra áunninna lífeyrisréttinda sjóðfélaga í sjóðnum á árinu 2009 og fyrr. Mun þessi lækkun hafa áhrif á greiðslur lífeyrisþega f.o.m. 1. júní nk. Á heimasíðu sjóðsins má finna ársreikning sjóðsins vegna ársins 2009 þar sem finna má ítarlegar upplýsingar um starfsemi og fjárhag Festu lífeyrissjóðs.