Vegna fréttar í Víkurfréttum þar sem fram kemur að sjóðurinn tapi líklega 1,7 milljarði kr. á falli Sparisjóðsins í Keflavík (SPKEF), er rétt að upplýsa eftirfarandi. Sjóðurinn átti skuldabréf á SPKEF sem búið var að færa niður um tæp 80% á árinu 2009. Sjóðurinn átti einnig stofnfjárbréf á SPKEF sem búið var að afskrifa að fullu á árinu 2009. Samanlagt nema þessar afskriftir og niðurfærslur um 1,6 milljarði króna og er þetta meginástæða fyrir slakri afkomu lífeyrissjóðsins á árinu 2009. Bókfærð eign Festu í skuldabréfum á SPKEF við fall sparisjóðsins nam 241 milljón króna. Ef lítið fæst upp í þær kröfur hefur það samt sem áður óveruleg áhrif á fjárhagsstöðu Festu lífeyrissjóðs.