Ársfundur Festu lífeyrissjóðs og gögn ársfundar
18.04.2023
Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 4. maí nk. kl. 18:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1) Venjuleg ársfundarstörf
2) Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
3) Önnur mál
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi meðan á honum stendur. Þeir sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér það eru beðnir um að skrá sig á festa@festa.is í síðasta lagi kl. 12 á fundardegi og fá þá uppgefna slóð til að tengjast.
Fundargögn:
Ársskýrsla Festu lífeyrissjóðs 2022
Starfskjarastefna Festu lífeyrissjóðs 2023
Tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins