
Barnalífeyrir
Ef sjóðfélagi andast, geta börn hans og kjörbörn yngri en 18 ára, átt rétt til barnalífeyris úr sjóðnum eins og nánar er kveðið á um í samþykktum sjóðsins.
Skilyrði fyrir greiðslu barnalífeyris eru að hinn látni hafi:
- greitt iðgjöld til sjóðsins 24 af 36 síðustu mánuðum fyrir andlátið eða 6 mánuði af undanfarandi 12 eða
- notið ellilífeyris eða örorkulífeyris úr sjóðnum sem svarar til minnst kr. 26.239 á mánuði m.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í desember 2023.
Við mat á því hvort framangreindum skilyrðum er fullnægt er sjóðstjórn rétt að taka mið af efnisreglu gr. 12.2. samþykkta sjóðsins sem fjallar um sérstakar aðstæður.
Sjá nánar samþykktir Festu lífeyrissjóðs.
Almennt
Barnalífeyrir greiðist einnig með börnum sjóðfélaga, sem nýtur örorkulífeyris úr sjóðnum, enda séu þau fædd eða ættleidd fyrir orkutap eða á næstu 12 mánuðum þar á eftir. Ef örorka sjóðfélaga er metin lægri en 100% skal barnalífeyrir vera hlutfallslega lægri. Barnalífeyrir sem greiddur er vegna örorku sjóðfélaga fellur ekki niður þó að sjóðfélaginn nái ellilífeyrisaldri.
Gott að vita
- Hver fær greiddan barnalífeyri?
- Get ég séð hjá hvaða sjóðum ég á réttindi?
- Greiðslur eru skattskyldar