festa
festa
festaSenda gögn á öruggan hátt
festa

+354 420 2100

festa

festa@festa.is

Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Kirkjubraut 40, 300 Akranes

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Austurvegur 56, 800 Selfoss

Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12

Kennitala: 571171-0239

Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Kirkjubraut 40, 300 Akranes

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Austurvegur 56, 800 Selfoss

Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12

Kennitala: 571171-0239

Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

© 2024 Festa Lífeyrissjóður - Allur réttur áskilinn.

©2024 Festa Lífeyrissjóður

Allur réttur áskilinn.

festafesta
FestafestaFestafesta
  • Lífeyrir
  • Lán
  • Séreign
LaungreiðendurUm sjóðinn
    • Ævilangur lífeyrir
      • Örorkulífeyrir
        • Makalífeyrir
          • Barnalífeyrir
            • Skipting lífeyrisréttinda
            • Umsóknir
              • Spurt og svarað
              Skipting lífeyrisréttinda

              Skipting lífeyrisréttinda

              Hjón og sambúðarfólk geta ákveðið að skipta á milli sín áunnum réttindum og framtíðarréttindum í samræmi við 3. mgr. 14. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Einnig er hægt að gera samkomulag um skiptingu greiðslna eftir að taka lífeyris er hafin.

              Þrjár leiðir eru mögulegar í samningum hjóna og fólks í sambúð varðandi skiptingu, sem fjallað er nánar um hér að neðan:

              • að skipta áunnum lífeyrisréttindum
              • að skipta framtíðarréttindum
              • að skipta greiðslum þegar taka lífeyris er hafin

              Margt þarf að hafa í huga þegar skoðað er hvort skipting ellilífeyrisréttinda henti og aðstæður fólks geta verið þannig að samningar um réttindaskiptingu kunna að vera óhagstæðir. Þá kunna lífeyrisréttindi einnig að vera ójöfn og skynsamlegt að skipta þeim til að tryggja báðum ásættanlegan lífeyri. Við ráðleggjum sjóðfélögum að hafa samband við ráðgjafa hjá lífeyrissjóðnum sínum til að meta hvort slíkur samningur henti.

              Samningur um skiptingu lífeyrisréttindaspurt og svarað
              Skipting lífeyrisréttinda

              Skipting áunninna lífeyrisréttinda

              Gera þarf samkomulag um skiptingu áunninna réttinda áður en taka lífeyris hefst en þó eigi síðar en fyrir 65 ára aldur og þá háð því, að sjúkdómar eða heilsufar sjóðfélaga hafi ekki dregið úr lífslíkum.  

              Samkomulag um skiptingu er gagnkvæm aðgerð þar sem hjón eða sambúðaraðilar veita hinu sama hlutfall réttinda sinna og skerðast þá réttindi sjóðfélagans sem því nemur. Skipting lífeyrisréttinda milli hjóna eða sambúðaraðila nær þó aðeins til þeirra réttinda sem hafa áunnist/munu ávinnast á meðan hjúskap eða sambúð varir eða varði og taka aðeins til ævilangs lífeyris en ekki til makalífeyris- eða örorkulífeyrisréttinda. Heimildin nær til allt að helmings lífeyrisréttindanna. 

              Skipting áunninna réttinda er byggð á aldri og kyni og getur því komið samanlagt út í mínus eða plús. Ástæðan er mismunandi ævilíkur eftir aldri og kyni. Því er mikilvægt að gefa sér tíma og kanna stöðu sína vel. 

              Til að samkomulag um skiptingu áunninna lífeyrisréttinda taki gildi þurfa báðir aðilar að undirrita samning og skila eftirfarandi fylgigögnum til móttökusjóðs, sem er að jafnaði sá sjóður sem síðast var greitt til. 

              • Samningur um skiptingu ellilífeyrisréttinda 
              • Heilbrigðisvottorð einstaklings, frá lækni 
              • Sambúðar- eða hjúskaparsöguvottorð, sem hægt er að nálgast hér 

              Rétt er að benda á að þegar áunnum lífeyrisréttindum hefur verið skipt er sú skipting endanleg og gengur ekki til baka þegar annar aðili fellur frá. Annað gildir um skiptingu lífeyrisgreiðslna.

              Skipting framtíðarréttinda

              Skipting framtíðarréttinda varða réttindi sem ávinnast eftir að skrifað er undir samning og þar til hjúskap eða sambúð lýkur. Til að skipting geti farið fram þarf að skila samningi. Skipting framtíðarréttinda er jöfn og gagnkvæm. Þegar framtíðarréttindum er skipt á milli maka myndast sjálfstæð réttindi hjá hvorum makanum sem veita rétt til ævilangs lífeyris. 

              Hægt er að skipta áunnum réttindum og framtíðarréttindum samhliða. Ef einungis á að skipta framtíðarréttindum er ekki þörf á að skila heilbrigðisvottorði eða hjúskaparsöguvottorði. Við skilnað eða sambúðarslit ber sjóðfélaga að tilkynna sjóðnum um það. 

              Skipting lífeyrisgreiðslna

              Hægt er að skipta greiðslum á ævilöngum lífeyri milli maka, óháð réttindum. Mikilvægt er að kanna áhrif slíkrar skiptingar á greiðslur frá TR.  

              Greiðslur renna þá að þeim hluta sem tekið er fram í samningi til maka. Skipting greiðslna gengur til baka við andlát sjóðfélagans en ef maki eða fyrrverandi maki andast á undan sjóðfélaganum renna greiðslurnar eftir það óskipt til sjóðfélagans. 

              Samningsaðilar skuldbinda sig til að tilkynna um samning um skiptingu lífeyrisgreiðslna til þeirra lífeyrissjóða sem í hlut eiga.

              Umsóknareyðublöð og ferlið

              Eingöngu er sótt um í einum sjóði, móttökusjóði, sem er að jafnaði sá sjóður sem annar hvor makinn greiddi síðast í. Sá sjóður sér um að senda gögn á alla viðeigandi sjóði. Ef engin athugasemd er gerð er skiptingin framkvæmd og upplýsingar um skiptingu sendar á báða aðila. 

              Þá er einnig að finna leiðbeiningar, samningseyðublöð og upplýsingar um verkferla á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða.

              Gott að vita

              • Þarf skipting að vera gagnkvæm?
              • Er skipting endanleg ráðstöfun?
              • Fyrir hvaða tímabil má skipta réttindum?
              • Skilnaður og andlát

              Hér að neðan má sjá kynningargögn og eyðublöð:

              • Heilbrigðisvottorð einstaklings

                PDF

                Leiðbeinandi reglur um skiptingu ellilífeyrisréttinda

                PDF

                Samningur um skiptingu ellilífeyrisgreiðslna

                PDF

                Samningur um skiptingu ellilífeyrisréttinda

                PDF

                Yfirlýsing trúnaðarlæknis vegna umsóknar um skiptingu lífeyrisréttinda

                PDF