festa
festa
festaSenda gögn á öruggan hátt
festa

+354 420 2100

festa

festa@festa.is

Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Kirkjubraut 40, 300 Akranes

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Austurvegur 56, 800 Selfoss

Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12

Kennitala: 571171-0239

Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Kirkjubraut 40, 300 Akranes

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Austurvegur 56, 800 Selfoss

Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12

Kennitala: 571171-0239

Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

© 2024 Festa Lífeyrissjóður - Allur réttur áskilinn.

©2024 Festa Lífeyrissjóður

Allur réttur áskilinn.

festafesta
FestafestaFestafesta
  • Lífeyrir
  • Lán
  • Séreign
LaungreiðendurUm sjóðinn
    • Starfsfólk
    • Stjórn og nefndir
    • Skipurit
    • Samþykktir, stefnur & reglur
    • Endurskoðendur
    • Persónuverndarfulltrúi
    Sjóðurinn
    • Fjárfestingarstefna
    • Ársskýrslur
    • Lykiltölur úr rekstri sjóðsins
    Fjármál
    • Aðildarfélög
      • Fréttir
      Fyrirliggjandi frumvarp leiðir óhjákvæmilega til skerðingar á ellilífeyri
      13.06.2025

      Fyrirliggjandi frumvarp leiðir óhjákvæmilega til skerðingar á ellilífeyri

      Festa lífeyrissjóður hefur sent Alþingi umsögn vegna fyrirliggjandi frumvarps um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna.

      Í umsögninni kemur fram að verði frumvarpið að lögum muni það leiða til verulegrar aukningar á greiðslum sjóðsins vegna örorkulífeyris til framtíðar.  Þannig felur frumvarpið í sér eignatilfærslu frá ellilífeyrisþegum til örorkulífeyrisþega, enda ljóst að auknar örorkugreiðslur hafi neikvæð áhrif á tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. 

      Fyrir liggur að aukning á greiðslum örorkulífeyris munu hafa áhrif til lækkunar á þeim fjármunum sem ætlaðir eru til greiðslu ellilífeyris og kemur verst niður á þeim sjóðum sem hafa þunga örorkubyrði. Hér reynir því á grundvallarforsendur sem liggja að baki skyldutryggingu lífeyrisréttinda og eignaréttarvörðum réttindum og jafnræði sjóðfélaga. 

      Bent er á það í umsögninni að frumvarpið muni að óbreyttu leiða til þess að fremur stór hópur muni verða með hærri tekjur á örorkulífeyri en hann var með áður á vinnumarkaði.

      Leiði breytingarnar til fjölgunar örorkulífeyrisþega mun það auka kostnað sjóðsins enn meira, sem myndi leiða til enn frekari skerðingar á ellilífeyrisgreiðslum. Samkvæmt áætlun sjóðsins og tryggingastærðfræðings hans gætu neikvæð áhrif á getu sjóðsins til greiðslu á ellilífeyri í framtíðinni numið um eða yfir 7,5%.

      Að mati sjóðsins er þörf á frekari greiningum og mati á áhrifum frumvarpsins á hagsmuni sjóðfélaga einstakra lífeyrissjóða. Ef vilji stjórnvalda er til breytinga þarf á sama tíma að leggja til viðeigandi mótvægisaðgerðir eða annars konar kerfisbreytingar sem tryggja að einstakir sjóðir og sjóðfélagar þeirra verði ekki fyrir neikvæðum fjárhagslegum afleiðingum.

      Umsögn sjóðsins í heild sinni má nálgast hér

      PRICE fyrirlestur í júní
      03.06.2025
      festafrá lífeyrismál.is

      PRICE fyrirlestur í júní

      PRICE fyrirlestur í júní um minnkandi frjósemi.

      Ríkisstjórnin stígi varlega til jarðar
      28.05.2025
      festafrá lífeyrismál.is

      Ríkisstjórnin stígi varlega til jarðar

      Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða var haldinn 27. maí. Í kjölfar fundarins hélt Már Guðmundsson afar áhugavert erindi.

      Hækkun á breytilegum vöxtum sjóðfélagalána
      19.05.2025

      Hækkun á breytilegum vöxtum sjóðfélagalána

      Frá og með 1. júlí 2025 hækka breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána Festu lífeyrissjóðs, fara úr 3,15% í 3,36%. 

      Fastir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána verða hins vegar óbreyttir 3,6%.

      PRICE fyrirlestrar í maí
      05.05.2025
      festafrá lífeyrismál.is

      PRICE fyrirlestrar í maí

      Tveir fyrirlestrar í maí um tengsl á eignamörkuðum og kynning um áhrif barneigna á sparnað.

      Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 2025
      23.04.2025
      festafrá lífeyrismál.is

      Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 2025

      Verður haldinn þriðjudaginn 27. maí kl. 11:00 á Grand hótel í Reykjavík.

      Undirbúningsnámskeið fyrir hæfismat
      23.04.2025
      festafrá lífeyrismál.is

      Undirbúningsnámskeið fyrir hæfismat

      Námskeiðið fer fram daganna 20.-23. maí 2025.

      Notkun gervigreindar á fjármálamarkaði
      22.04.2025
      festafrá lífeyrismál.is

      Notkun gervigreindar á fjármálamarkaði

      Ath. breytt staðsetning. Fundurinn verður í Hyl, jarðhæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

      1
      2
      3
      …
      15