+354 420 2100
festa@festa.is
Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Austurvegur 56, 800 Selfoss
Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12
Kennitala: 571171-0239
Sjóður 800 / Séreignasjóður 801
Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Austurvegur 56, 800 Selfoss
Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12
Kennitala: 571171-0239
Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

Fyrirlestur um fjárfestingar lífeyrissjóða haldinn í Þjóðminjasafninu, 28. apríl kl. 12–13.30.

Sjóðfélagayfirlit hafa nú birst öllum sjóðfélögum inná bæði sjóðfélagvefnum hjá Festa.is og einnig inn á Island.is. Birtast þau rafrænt 2 sinnum á ári.
Hér má sjá dreifibréf með sjóðfélagayfirlitum
Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á sjóðfélagayfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum. Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa við gjaldþrot skulu launþegar, innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins, ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til lífeyrissjóðsins. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að launþegi tilkynni það til lífeyrissjóðsins, með framlagningu launaseðla innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er lífeyrissjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd.

Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 4. maí nk. kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1) Venjuleg ársfundarstörf
2) Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
3) Önnur mál
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi meðan á honum stendur. Þeir sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér það eru beðnir um að skrá sig á festa@festa.is í síðasta lagi kl. 12 á fundardegi og fá þá uppgefna slóð til að tengjast.
Sjá hér að neðan tengla á fundargögn fundar:
Ársskýrsla Festu lífeyrissjóðs 2025
Starfskjarastefna Festu lífeyrissjóðs 2026

Stjórn Festu lífeyrissjóðs hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2025. Til upplýsinga fyrir sjóðfélaga verða hér birtar helstu niðurstöðutölur ársreikningsins. Ársreikningurinn mun verða birtur í heild sinni á vefsíðu sjóðsins í aðdraganda ársfundar sjóðsins sem fyrirhugað er að halda mánudaginn 4. maí nk.
Fjöldi sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld á árinu 2025 voru samtals 20.586 og jókst um tæp 2% milli ára. Fjöldi sjóðfélaga með réttindi í árslok 2025 var 116.382. Launagreiðendur voru 3.258.
Iðgjöld til sjóðsins námu um 18 milljörðum króna og hækkuðu um 5,7% á árinu.
Lífeyrisgreiðslur á árinu námu um 9,1 milljörðum króna og hækkuðu um 10,5% á árinu. Heildarfjöldi lífeyrisþega var 13.211 en þeim fjölgaði um 4% á árinu.
Hrein eign sjóðsins í árslok 2025 nam tæplega 347 milljörðum króna og jókst um 8,3% frá fyrra ári eða um tæpa 27 milljarða króna. Hrein eign samtryggingardeildar nam 344,4 milljörðum króna og séreignardeilda tæplega 2,2 milljörðum króna.
Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins var jákvæð um 5,3% og hrein raunávöxtun var jákvæð um 1,5%, en verðbólga mældist 3,7% yfir árið. Tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar var neikvæð, en skuldbindingar voru 2,6% umfram eignir sjóðsins í árslok 2025.
Hrein nafnávöxtun sparnaðarleiðar 1, var jákvæð um 4,6% og hrein raunávöxtun var jákvæð um 0,9%. Hrein nafnávöxtun sparnaðarleiðar 2, var jákvæð um 5,4% og hrein raunávöxtun var jákvæð um 1,6%.
Eins og að framan greinir er fyrirhugað að halda ársfund sjóðsins mánudaginn 4. maí nk. Dagskrá fundarins verður auglýst á heimasíðu sjóðsins og í dagblöðum.

Fræðsluefni fyrir lífeyrissjóði um áhættumat og varnir gegn peningaþvætti.

Fyrirlestrar um umbætur á sænska lífeyriskerfinu og fjögurra daga vinnuviku verða haldnir í Þjóðminjasafninu 13. og 19. mars kl. 12–13:30.

Sænskur sérfræðingur heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafninu 13. mars 2026, kl. 12 - 13:30.

Frá og með 1. apríl 2026 lækka breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána Festu lífeyrissjóðs, fara úr 3,67% í 3,43%. Fastir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána verða hins vegar óbreyttir 3,7%.