festa
festa
festaSenda gögn á öruggan hátt
festa

+354 420 2100

festa

festa@festa.is

Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Kirkjubraut 40, 300 Akranes

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Austurvegur 56, 800 Selfoss

Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12

Kennitala: 571171-0239

Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Kirkjubraut 40, 300 Akranes

Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15

Austurvegur 56, 800 Selfoss

Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12

Kennitala: 571171-0239

Sjóður 800 / Séreignasjóður 801

© 2025 Festa Lífeyrissjóður - Allur réttur áskilinn.

©2025 Festa Lífeyrissjóður

Allur réttur áskilinn.

festafesta
FestafestaFestafesta
  • Lífeyrir
  • Lán
  • Séreign
LaungreiðendurUm sjóðinn
    • Starfsfólk
    • Stjórn og nefndir
    • Skipurit
    • Samþykktir, stefnur & reglur
    • Endurskoðendur
    • Persónuverndarfulltrúi
    Sjóðurinn
    • Fjárfestingarstefna
    • Ársskýrslur
    • Lykiltölur úr rekstri sjóðsins
    Fjármál
    • Aðildarfélög
      • Fréttir
      Niðurstaða aukaársfundar Festu 2026
      05.11.2026

      Niðurstaða aukaársfundar Festu 2026

      Aukaársfundur Festu lífeyrissjóðs var haldinn miðvikudaginn 4. nóvember s.l. á Grand Hótel Reykjavík. Meginefni aukaársfundar var kynning á samrunasamningi Festu og Gildis lífeyrissjóðs. Jafnframt voru kynnt tryggingafræðileg áhrif sameiningar og áhrif sameiningar á núverandi samþykktir Festu lífeyrissjóðs.

      Að loknum kynningum var gengið til atkvæðagreiðslu um samrunasamninginn og var hann samþykktur með miklum meirihluta atkvæða. 

      Samrunasamningurinn verður jafnframt lagður fyrir aukaársfund Gildis í dag, 5. nóvember. Verði hann samþykktur tekur við staðfestingarferli hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Samkeppniseftirlitinu. Stefnt er að því að sameiningin taki gildi um áramót.

      Sameiningin kallar ekki á neinar aðgerðir af hálfu sjóðfélaga. Upplýsingar um sameininguna og svör við algengum spurningum má finna á vefslóðinni www.gildiogfesta.is ásamt því að fundargögn aukaársfundar Festu eru aðgengileg á vef sjóðsins. 

      Streymi vegna aukaársfundar Festu lífeyrissjóðs
      04.11.2026

      Streymi vegna aukaársfundar Festu lífeyrissjóðs

      Aukaársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldin í dag , 4.nóvember kl 18:00 á Grand Hótel.

      Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í streymi á eftirfarandi hlekk:

      https://youtube.com/live/jtn4kDewWkA?feature=share

      Lokað vegna starfsmannafundar
      28.10.2026

      Lokað vegna starfsmannafundar

      Föstudaginn 30.október verða allar skrifstofur sjóðsins lokaðar vegna starfsmannafundar.

      Opnum aftur mánudaginn 2.nóvember. Alltaf hægt að senda tölvupóst á festa@festa.is og við svörum við fyrsta tækifæri.

      On Friday, October 30th, all of the fund’s offices will be closed for staff meetings.

      We will reopen on Monday, November 2nd. You can always send an email to festa@festa.is , and we will respond as soon as possible.

       

      Íslenska lífeyriskerfið áfram meðal þeirra bestu í heimi
      20.10.2026
      festafrá lífeyrismál.is

      Íslenska lífeyriskerfið áfram meðal þeirra bestu í heimi

      Ísland er í þriðja sæti í alþjóðlegum samanburði Mercer lífeyrisvísitölunnar árið 2026.

      Sjóðfélagayfirlit
      16.10.2026

      Sjóðfélagayfirlit

      Sjóðfélagayfirlit hafa verið birt öllum sjóðfélögum bæði inná sjóðfélagvefnum hjá Festa.is og einnig inn á Island.is. Birtast þau rafrænt 2 sinnum á ári. 

      Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á sjóðfélagayfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum. Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa við gjaldþrot skulu launþegar, innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins, ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til lífeyrissjóðsins. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að launþegi tilkynni það til lífeyrissjóðsins, með framlagningu launaseðla innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er lífeyrissjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd.

      Aukaársfundur Festu 2026
      09.10.2026

      Aukaársfundur Festu 2026

      Aukaársfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 4. nóvember n.k., kl. 18:00 á Grand hótel, Reykjavík. Dagskrá fundar er eftirfarandi: 

       

      1. 1.  Fundargerð síðasta ársfundar 
      2. 2.  Kynning á samrunasamningi Festu lífeyrissjóðs og Gildis lífeyrissjóðs 
      3. 3.  Kynning tryggingastærðfræðings Festu á tryggingafræðilegum áhrifum sameiningarinnar 
      4. 4.  Kynning á samþykktum sameinaðs sjóðs og breytingar frá núgildandi samþykktum Festu 
      5. 5.  Kosning um sameiningu Festu lífeyrissjóðs við Gildi lífeyrissjóð 
      6. 6.  Önnur mál 

      Gögn fundarins má nálgast hérna:

      Fundargerð ársfundar Festu lífeyrissjóðs 2026

      Samrunasamningur Festu og Gildis

      Nýjar samþykktatillögur bornar saman við gildandi samþykktir Festu - Heildarskjal

      Nýjar samþykktatillögur bornir saman við gildandi samþykktir Festu - Kynning

       

      Frekari upplýsingar um samrunaviðræður sjóðanna má einnig nálgast á eftirfarandi slóð: www.gildiogfesta.is  

      Fundinum verður jafnframt streymt fyrir hinn almenna sjóðfélaga. Hægt verður að nálgast slóð á streymi á vefsíðu Festu á fundardegi. 

       

      Fyrirlestur um grunnlífeyri og umbætur á sænska lífeyriskerfinu
      02.10.2026
      festafrá lífeyrismál.is

      Fyrirlestur um grunnlífeyri og umbætur á sænska lífeyriskerfinu

      Fyrirlestur á vegum PRICE um grunnlífeyri og umbætur á sænska lífeyriskerfinu.

      Fulltrúaráðsfundur Festu lífeyrissjóðs að hausti
      29.09.2026

      Fulltrúaráðsfundur Festu lífeyrissjóðs að hausti

       

      Fulltrúaráðsfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 8. október nk. kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.

      Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum. Dagskrá fundar er eftirfarandi:

      1. 1.Kynning á afkomu sjóðsins og framvindu fjárfestingarstefnu

        2.Kynning á samrunasamningi Festu og Gildis og breytingum á samþykktum

        3.Kynning tryggingastærðfræðings Festu á tryggingafræðilegum áhrifum sameiningarinnar

        4.Önnur mál

       

      1
      2
      3
      …
      15